Samúðar– og Útfararblóm

Við ástvinamissi er gott að geta leitað til fagfólks.

Í Býflugunni og blóminu býðst þér að velja úr fjölbreytilegum útfararskreytingum og samúðarblómum hvort heldur er hér í netversluninni eða í verslun okkar.

Starfsfólk okkar er boðið og búið til að aðstoða þig við val þitt á blómum og útfærslu á skreytingu.

Æskilegur pöntunarfyrirvari á útfararskreytingum er þrír sólarhringar, þar sem þann tíma getur tekið að útbúa útfararborða eða útvega þau blóm sem óskað er eftir.

Í flokkunum hér að neðan getur þú valið þá skreytingu sem hentar þér.

Við bjóðum upp á fleiri litasamsetningar og útfærslur en birtast hér á vefnum okkar.
Hafðu samband við okkur eða sendu skilaboð varðandi aðrar útfærslur.