Fyrirtækjaþjónusta
Fyrirtækjaþjónusta Býflugunnar og blómsins aðstoðar við að gera stofnanir og fyrirtæki falleg og heilsusamleg fyrir starfsfólk og viðskiptavini, með plöntum og skreytingum.
Við bjóðum upp á áreiðanlega þjónustu sem felur í sér m.a. að koma á staðinn og aðstoða við að finna lausnina sem hentar hverju sinni.
Býflugan og blómið sér um hverskyns skreytingar , blóm í áskrift og blómvendi við öll tækifæri.
Við leggjum áherslu á:
Grænar lausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Skreytingar við öll tækifæri, svo sem í fundar-, ráðstefnu- og veislusali.
Blómaáskrift þar sem ný, afskorin blóm eða plöntur koma með reglulegu millibili til viðskipavina okkar.
Silkiblóm, þar sem þau henta.
Hafðu samband og sjáðu hvort við getum ekki aðstoðað þig.