Um okkur
Sagan okkar
Blóma og gjafavöruverslunin Býflugan og blómið var opnuð 4. desember 1999 af hjónunum Stefáni J.K. Jeppesen og Báru Magnúsdóttur. Verslunin hefur verið staðsett á fimm mismunandi stöðum á Akureyri og hefur ávalt sprengt utan af sér húsnæðið. Í desember 2014 flutti verslunin í Dalsbraut 1 á Akureyri. Verslunin býður upp á flest sem tengist blómum svo og vörur sem tengjast fegrun heimilisins, hvort heldur er til eigin brúks eða til gjafa.
Stór hluti þeirra vara sem boðið er upp á, kemur úr eigin innflutningi sem þar af leiðandi skapar Býflugunni og blóminu þó nokkra sérstöðu frá öðrum verslunum í sama geira. Nýjar og ferskar vörur reglulega.
Reynsla eigendanna er mikil á þessu sviði þar sem þau hafa unnið til fjölda ára við verslunar og þjónustustörf svo og annað starfsfólk verslunarinnar.
Áhersla Býflugunnar og blómsins er góð og persónuleg þjónusta. Því er stuðst við orðatiltækið
„allt sem er þess virði að það sé gert, er þess virði að það sé vel gert“.
Því viljum við gjarnan að þú látir aðra vita ef þú ert ánægður með þjónustuna, en okkur ef þú ert óánægður.
Heildsala
Býflugan og blómið er með eigin innflutning á ýmsum vörum sem endursöluaðilar geta fengið í heildsölu.
Frekari upplýsingar og aðgangur að heildsöluverði eru gefnar hjá heildsölu Býflugunnar og blómsins í gegnum síma 461-5444.
Heimsending
Heimsendingar eru alla daga á opnunartíma Býflugunnar og blómsins og samstarfsaðila okkar
þar sem þeirra nýtur við. Við gefum okkur allt að 24 tíma að afgreiða sendingar frá okkur úr húsi.
Heimsendingar utan Akureyrar eru um allt land í samstarfi við DROPP með föstu verði, einnig með ýmsum þjónustu- og flutningsfyrirtæki eða gegnum samstarfsaðila okkar í bæjarfélögum landsins þar sem þeirra nýtur við.
Heimsendingargjald er fast innan bæjarmarka en mismunandi utan Akureyrar eða í öðrum landshlutum nema með DROPP þar sem er fast gjald kr. 2000/- og miðast við að sendingin sé innan 30 Kg.
Að gefnu tilefni er ekki hægt að flytja ferskblóm og pottaplöntur með DROPP.
Akstur 1, heimsending innanbæjar á Akureyri miðast við Kjarnaskóg að sunnan, Leirubrú að austan og byggðarkjarna Hörgársveitar við bæjarmörk Akureyrar að norðan kr. 2000/-
Akstur 2, heimsending rétt út fyrir Akureyri miðast við Hrafnagil að sunnan, Vaðlabyggð að austan og Þelamörk að norðan kr. 2000/-
Akstur 3, heimsending Eyjafjarðarsveit og Svalbarðseyri kr. 2500/-
